eXTReMe Tracker

lördag, februari 26, 2005

Ég er að baka...hugsið ykkur!!

Eins og þið vitið þá vinn ég í skóla og hef aðsetur í unglingaskólanum, mitt í öllu stökinu.
Mér er oft hugsað til þess hvað það er þægilegt að vera ekki unglingaforeldri núna. Og þótt ég hafi ekki yfir neinu að kvarta frá þeim tíma (ef ég man rétt að segja) þá vildi ég ekki vera í foreldranna sporum í dag. Við höfum 3 elstu árgangana og það eru 4 bekkir af hverjum árgang og stórir bekkir sem er þetta frá 22-32 krakkar í hverjum bekk. Sem sagt 335 krakkar og allir eins, nei sko ekki fræðilegur möguleiki.
Við höfum pönkara sem klæða sig í pönkaraföt, með keðjum og nítum og fleira, en það eru ekki nein vandræðabörn, langt í frá, svona bara við fyrstu kynni heldur maður það út af klæðnaðinum, nei þetta eru hin mestu ljós, bara strákar þetta árið og það stórir strákar, ganga um með hettu á hausnum og ef engin er hettan þá er harið greitt beint upp í loft með allavega litum, svo það þarf tíma á morgnana til að koma hárinu í lag, svo þetta væri ekkert fyrir hana Katrínu.
Svo er einn strákur sem setur allan skólan á annan endan, allir kennarar sem eru 35 manns og við skrifstofufólkið sem erum 12 manns, allir eru settir í vinnu með þennan blessaða dreng, sem hótar kennurum og nemendum með að drepa það tekur hálstaki á stelpum sem eru í kringum hann og hann er bara 13 ára. Það er búið að reyna allar mögulegar leiðir til að geta haft drengin í skólanum, hann fær einn kennara sem fylgir honum allan skóladaginn, líka í frímínútum en ekkert virðist vera hægt að gera. Svo eftir páska verður hann fluttur í sérstaka deild í bænum ef hann ekki lagast á þeim vikum.
Svo eru krakkar sem eru í sambandi við eldri fyrrverandi nemendur sem koma á föstudögum og selja dóp, svo maður er eins og lögga á föstudögum til að sjá þegar þetta lið kemur fyrir utan skólan og þá er bara að hringja í löggurnar. Svo er einn eða tveir fyrrverandi nemendur sem voru mjög erfiðir öll skólaárin loksins teknir fyrir að brjótast inn í skóla bæjarins og stela tölvum svo núna loksins þegar hann varð 18 ára var hann handtekinn og hann viðurkenndi. Sá drengur var með bókstafs eitthvað, sem við köllum Damp.
Það er ekki mikið af stelpum sem hafa vesen en samt nokkrar, eins og ein sem klæðist eingöngu í svart og er máluð kringum augun með kolsvörtum blíant og strik niður á kinn og er með ljótan kjaft við fullorðna, en það er ekkert illt í henni, hún er skemmtilegur karakter, á bara eftir að komast yfir viss takmörk í lífinu. Svo eru nokkrar sem eru rosa pæjur og eru mjög merkilegar með sig en eru svo litlar í sér þegar á reynir.
Svo þetta er mikill léttir að mans eigin tími er komin yfir þetta áhyggjuefni sem foreldri.

Jú, ég er að baka tertu fyrir daginn á morgun, sem er svona íslendingadagur, og á að vera knallþórutertur og læti, hefði viljað baka kleinur en á enga hrærivél og lítið borðpláss til að hnoða og skera út, svo þetta varð gulrótarterta sem er keypt í pakka, og ég þarf bara að bæta út í vatni og smjörlíki og meira að segja kremið er í poka líka, en ég ætla að drýgja það út með Piladelfiaost og rifnu hýði af lime....þá kanski kemur ekki pakkabragð af þessu. En allir íslendingar finna örugglega pakkabragðið gæti ég trúað...eða hvað haldið þið?

Úti er glampandi sól og fínt svo ég sé ekki hvað ég skrifa því sólin er akkúrat á skerminn en ég bara get ekki hugsað mér að setja niður rimlagardínurnar, get ekki bara lokað á sólina.

lördag, februari 19, 2005

Sól og rigningardagur, sem er laugardagur í þetta sinn

Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að skrifa um. Var að koma inn frá klukkutíma göngutúr í góðu veðri, það kom sól í smá tíma en svo er að byrja að rigna aftur. Ég kom við í nammi búðinni, sem selur 300 sortir af nammi, svo ég ákváð að hafa þetta laugardagsnammidag, er búin að vera svo dugleg að labba á hverjum degi svo mér finnst ég eiga þetta skilið, samt ógeðslegt.....eftir á.

Í gær átti minnsta frænka eins árs afmæli, hún Hafdís Maria á Laugarbakka, til hamingju með það, þau sem taka að sér hamingjuóskir. Hún átti nú á fæðast á mínum afmælisdegi stelpan sú, en vildi eiga eigin dag, gott hjá henni.

Núna er ég búin að kaupa farmiða heim til Islands um páskana, á alveg dásamlegt frændfólk hér í bæ sem bara kröfðust þess að ég færi heim í nokkra daga, fanst ég verulega þurfa á því að halda, eftir allt sem hefur gengið á hjá mér í mínu lífi síðustu mánuði og til að geta krafist þessa var ég beðin að koma í heimsókn til að taka á móti peningaupphæð sem var fyrir flugmiðanum. Það gekk ekki að afþakka þetta boð og ég má borga það í himnum þegar við hittumst þar. Þá verða þetta englapeningar. Þetta var erfiðara en ég hefði getað trúað, að taka við svona peningagjöf í beinhörðum peningum, en ég mun njóta þess til fullnustu að geta komið heim og hitt mína fjölskyldu í nokkra daga og kanski fengið lambakjöt í matinn, venjulegt alvöru lambakjöt og kleinur, flatkökur og snúða. Þess vegna er betra að éta gotterí til að teigja út magan svo þetta verið ekki sjokk þá ha, ha, ha.

Næsta sunnudag 27 feb. er ég ásamt helling af íslendingum boðin í kaffi til ísl, konu sem heitir Beta í Karlstad eða hún býr fyrir utan Karlstad út í sveit, svo hún hellir á könnuna og við komum með kaffibrauð og hnallþórur með okkur svo þetta verður kaffihlaðborð að íslendinga hætti kl þrjú. Það verður spennandi að hittast, en mörg af okkur hafa hittst áður og bakað laufabrauð saman, en það eru nokkur ár síðan. Beta og maðurinn hennar sem er sænskur læknir fluttu eitt ár til Íslands fyrir ca 2-3 árum, hann var þá læknir í Keflavík. Hasse minnir mig að hann heiti.
Svo þá eftir þann sunnudag hef ég kanski frá einhverju skemmtilegu að segja og læt þetta því duga núna.
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com