eXTReMe Tracker

söndag, september 04, 2005

Ætla aldrei að flytja aftur:-)


Púffffff, hvað þetta er erfitt með fluttning.
En þetta gekk samt mjög vel, flutti alla kassa og smádót á fimmtudegi og svo húsgögn á laugardegi. Víðir kom til að hjálpa eins og venjulega, en hann sagði að þegar ég loksins væri komin í ró í þessari íbúð þá myndi ég hitta stóru ástina og vildi flytja aftur.......en þá þyrfti hann sko ekki að koma alla leið frá Gautaborg...nýi kallin gæti séð um hjálpina ha, ha, ha.
Það er svo rólegt og gott hérna í húsinu, enda mikið af eldra fólki. Strætó stoppar alveg hér fyrir utan húsið, póstkassinn er alveg við hliðina til að senda bréf, Taxisoon er hér alveg líka ef maður tekur leigubíl, svo þegar ég kemst á ellilaun skipti ég á bílnum og fæ mér rúllator (svona stól með innkaupakörfu og stól á til að hvíla sig á) og fer í matvörubúðina sem á að opna hér alveg fyrir neðan í október, svo þá er það bara apótekið og sjúkrahúsið sem vantar ha, ha.

Það er ennþá sumarblíða og hiti hér alla daga en getur verið svalt á næturna, svo þetta er æðislegt, bara vantar þægileg húsgögn á svalirnar til að sitja við á kvöldin með kertaljós og leysa krossgátur, nú eða prjóna eins og Heiðrún gerir:-)

Var að prófa að setja inn mynd og svei mér þá ef það ekki tókst alla vega hér á meðan ég skrifa. Sniðugt. Þetta er garðurinn fyrir neðan húsið, tekið af svölunum.

Fór á markaðinn í Filipstad í gær og keypti fullt af stofublómum, svo þetta er að verða mjög heimilislegt hjá mér núna. En það er erfitt að flytja úr húsi í 3ja herb. íbúð og síðan í 2ja herb...með minni skápaplássi, en verð bara að vera duglegri að henda, ekki safna dóti....hvernig geri ég það????? Jú, það er stillt hér úti stórri kerru annan hvern miðvikudag sem maður getur hent stóru dóti sem er ekki venjulegt rusl og svo keyrir húsvörðurinn kerruna og hendir á ruslahaugana, gott mál.
Einu sinni keypti ég matborð og stóla, voða flottir stólar með blárri sessu, en ég keypti 8 stóla, en kem bara fyrir 4-6 núna, enda þarf ég ekki fleiri sjálf, en þetta gerði ég til að hafa fyrir gesti sem komu, svo maður hefði sæti við borðið, hvað á ég að gera við hina stólana? Ekki pláss í geymslunni, ekki pláss í íbúðinni....selja þá? Tími því samt ekki, eru svo flottir.
Heiðrúnu vantar kanski eldhússtóla?????

Hætti þessu rausi í bili, vonandi hef ég eitthvað skemmtilegt að skrifa um næst.
Weblog Commenting and Trackback by HaloScan.com